Mosfell á Spáni
Ágæti félagsmaður
Í dag opnum við fyrir leiguna á orlofshúsinu okkar, Mosfelli á Spáni, sem við höfum verið með aðgang að s.l. ár við góðar undirtektir.
Húsið er á Torrevieja rétt hjá Alicante. Við bjóðum upp á tveggja vikna leigutímabil yfir sumartíma, en utan þeirra er hægt að panta sér eina viku í senn.
Félagmenn eru beðnir að skoða það vel að skiptidagar eru þriðjudagar og á tímabilinu frá 30. apríl - 21. maí er hægt að panta eina eða tvær viku.
Síðan byrja sumartímabilin og eru þau sem hér segir: 21. maí - 4. júní, 4. - 18. júní, 18. júní - 2. júlí, 2. - 16. júlí, 16. - 30. júlí, 13. - 27. ágúst, 27. ágúst - 10. sept., 10. - 24. sept., 24. sept. - 8. okt. Eftir 8. okt. til með 3. des. er hægt að panta sér vikudvöl ef félagsmenn kæra sig um.
Flest flugfélög og ferðaskrifstofur eru með flug til Alicante á þriðjudögum og flest starfsmannafélög eru með skiptidag á þessum vikudegi.
Til að fá nánari upplýsingar um húsið og umhverfið þess, fari á inn á slóðina; www.tilspanar.is og þar má finna er allt sem vita þarf um íbúðina.
Vikan kostar 39 þúsund og tveggjavikna tímabilið því 78 þúsund.
Með bestu kveðjum,
Guðbjörn Arngrímsson
formaður orlofsnefndar Samflots